Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Sunnudagur, 2. apríl 2006
2.apríl 2006
Það styttist heldur betur í Mexiko.. Við förum þangað seinnipartinn í næsta mánuði er nú alveg farin að hlakka til!..
Svo er það skólinn, klára prófin næsta föstudag og fer þá í 2 vikna páskafrí!.. jeminn það hefur ekki gerst í mörg ár!.. Það frí er jú planað eins og öll önnur frí.. Húsið verður tekið í gegn og lagað það sem tími gefst!..
Flensan! uss hún er gjörsamlega búin að ná tökum á þessu heimili.. Lena Margrét byrjaði, Ari tók við og í nótt vaknaði ég við að sonurinn lá við hlið mér sjóðbullandi heitur. ég held áfram að krossa putta um að ég sleppi allavega fram yfir próf.. ég er alveg hætt að hrósa happi yfir því að sleppa... því undanfarin ár hef ég verið með þeim síðustu sem falla í þessa flensu!!
Bið að heilsa í billi..
ps. það munaði litlu að ég hlypi 1.apríl í gær..
var í skóla til kl 2 aðra nótt að gera hópverkefni í timburáfanga. Ég fór heim þegar mínir frábæru félagar voru að leggja lokahönd á verkefnið. í hádeginu í gær hringdu þeir í mig og sögðu að þetta hefði ekki gengið og við verðum að leggjast yfir þetta aftur... (það lá við að ég færi að gráta) en ég sagði þeim að ég kæmi um leið og ég gæti!! var búin að lofa mér í annað!.. þá fóru þeir að hlægja og buðu mér að koma með sér út að borða til að fagna verkefnaskilum sem ég b.t.w var að afþakka
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Nördið
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar